Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Mánudaginn 07. desember 1998, kl. 15:32:01 (1732)

1998-12-07 15:32:01# 123. lþ. 34.7 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, heilbrrh. (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 34. fundur, 123. lþ.

[15:32]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Það hefur allt komið fram hjá forseta sem hér áður hefur verið rætt. Dómsmrh. svaraði því áðan að frv. um persónuvernd hefur farið í gegnum ríkisstjórn og liggur nú hjá þingflokki Sjálfstfl. Við höfum þegar afgreitt það frá þingflokki Framsfl. Það hefur þegar komið fram. Og það hefur líka þegar komið fram í þessari umræðu hjá hv. þm. Hjörleifi Guttormssyni að enginn hefur vit á gagnagrunnsfrv. nema hann, hv. þm. (HG: Rétt.)