Jón Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Það er rétt að skerðingin var tekin upp aftur en hins vegar var ákveðið í tíð núverandi ríkisstjórnar að létta rekstrarverkefnum af sjóðnum. Skerðingin er á og ég hef ekki borið á móti því og það má deila um það og við ræðum það auðvitað í fjárlagaumræðunni, um stöðu fatlaðra almennt. En ég kom hér upp til að halda þessum atriðum til haga í umræðunni, hvernig staðan er í raun og veru því umræðan hefur fram að þessu verið á þann veg í haust að þessa hefur ekki verið getið.