Vilhjálmur Egilsson:
Hæstv. forseti. Það vekur athygli mína að þetta þingskjal sem er tillaga til rökstuddrar dagskrár líkist í uppsetningu óneitanlega mikið þingskjölum frá Evrópuþinginu. Ég var að velta því fyrir mér hvaðan hv. þm. væri farinn að fá sínar fyrirmyndir.
Þetta mál hefur fengið mikla umfjöllun, bæði hér á þingi og eins í þjóðfélaginu. Ég tel að það sé ákveðin óvirðing við þá miklu vinnu sem búið er að leggja í frv. að taka það ekki til atkvæða. Þess vegna segi ég nei við þessari frávísunartillögu.