Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Hér er lagt til að vísa frv. ríkisstjórnarinnar um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði til endurskoðunar hjá þeirri sömu ríkisstjórn og flytur þetta frv. í umboði fyrirtækis sem er að hluta til í eigu bandarískra áhættufjárfesta og tryggingafélaga. Þar liggur eignarhaldið í dag. Hvar það verður á morgun veit hins vegar enginn, hugsanlega hjá sömu tryggingafyrirtækjum og sömu lyfjafyrirtækjum sem vísindamenn og læknar óttast að kunni að misnota íslenska þjóð í tilraunaskyni. Þetta frv. stríðir gegn alþjóðasáttmála og alþjóðasiðareglum vísindamanna og lækna.
Hæstv. forseti. Ég segi já við því að vísa þessu frv. til ríkisstjórnarinnar og helst alla leið til föðurhúsanna.