Bryndís Hlöðversdóttir:
Herra forseti. Hér kemur fram mjög athyglisverð hugmynd sem lögð hefur verið fram í brtt. af hálfu hv. þm. Guðmundar Árna Stefánssonar o.fl. Það hefur verið gagnrýnt af mörgum hér, og ég hef tekið undir þá gagnrýni, að þetta mál hefur hvorki fengið umfjöllun í heilbr.- og trn. né heldur í þinginu að öðru leyti. Þess vegna tek ég þá afstöðu að sitja hjá við atkvæðagreiðslu um þessa grein.