Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 17:59:27 (2025)

1998-12-10 17:59:27# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, GÁS (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[17:59]

Guðmundur Árni Stefánsson (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Eins og ég gat um áðan þá eru þær 12 brtt. við þetta frv. sem er að finna á borðum þingmanna samhangandi og mynda eina heild. Í ljósi þess að nú hefur Alþingi fellt þessa 1. brtt. af 12, þá er eðlilegt að draga hinar til baka því lengur eiga þær tæpast við og í því ljósi eru þær hér með afturkallaðar.