Pétur H. Blöndal:
Herra forseti. Hér er gert ráð fyrir að veita rekstrarleyfi og mun það verða mikil lyftistöng innlendum vísindum. Það mun auka ungu menntafólki bjartsýni og vísindafólk sér loksins möguleika á því að vinna hjá öðrum en opinberum aðilum og sætta sig við þau launakjör sem þar hafa verið í boði. Það fyllist bjartsýni og þetta frv. mun því auka frumkvæði þess.