Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Ég kem upp einvörðungu til að vekja athygli alþingismanna á því að hér eru greidd atkvæði um algerlega óútfylltan tékka. Það er verið að veita hæstv. heilbrrh. og ríkisstjórninni heimild til reglugerðarsetninga. Enginn veit hvað kemur til með að standa í þessum reglugerðum. Enginn.