Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Forseti getur ekki svarað fyrir gerðir heilbr.- og trn. og forseti getur heldur ekki tekið undir gagnrýni hv. þm. á að fundur skuli hefjast þótt nefndarmenn í tiltekinni nefnd séu ekki mættir til fundar. Það er hins vegar gagnrýnivert að fundur skuli standa í þingnefnd eftir að fundur hefst í þinginu. Það er gagnrýnivert.
Fjárlög eru hér á dagskrá og umræðum um fjárlög verður haldið áfram.