Guðný Guðbjörnsdóttir:
Herra forseti. Frsm. minni hlutans í fjárln. hafði orð á því í morgun hversu fáir væru mættir til umræðunnar og hversu mikið virðingarleysi ríkti yfir fjárlagaumræðunni. Nú á að fara að bjóða þinginu upp á það að hafa fundi með formönnum þingflokka á meðan talsmaður minni hlutans í fjárln. flytur ræðu sína.
Ég mótmæli því harðlega og mæli með því og tek undir óskir í þá veru að gera fundarhlé nú og að þessi mál verði afgreidd áður en fjárlagaumræðan heldur áfram.
(Forseti (ÓE): Það verður tekið tillit til þeirra mótmæla að fundur með formönnum þingflokka verður ekki haldinn meðan einhver formaður þingflokks er í ræðustól.)