Sólveig Pétursdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Skil ég orð hv. þm. þá á þann hátt að hann telji ekki að málið sé gjörbreytt með þeim brtt. sem meiri hlutinn leggur fram? Vegna þess að það er einmitt það sem minni hlutinn í heilbr.- og trn. heldur fram í málinu. (HG: Ég er enginn minni hluti í heilbr.- og trn.)