Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Miðvikudaginn 16. desember 1998, kl. 16:22:27 (2429)

1998-12-16 16:22:27# 123. lþ. 43.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, MF (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur, 123. lþ.

[16:22]

Margrét Frímannsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Í dag er óheimilt að búa til og viðhalda einum miðlægum gagnagrunni um erfðaupplýsingar og hér gilda engin lög eða reglur um meðferð slíkra upplýsinga. Telur hv. þm. ekki þörf á að gengið sé frá slíkri löggjöf áður en menn fara að nota erfðaupplýsingar í öðrum tilgangi en upplýst samþykki sjúklings liggur fyrir um?