![](http://www.althingi.is/myndir/althlit.gif)
Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Það er alveg hárrétt hjá hæstv. menntmrh. og eðlilegt að minna á þá skýrslu sem nú er komin fram. Ég hygg að hún staðfesti einmitt að þessir útreikningar, sem áður lágu fyrir og ég hafði upplýsingar um af Norðurlandi vestra, birta svipaða niðurstöðu að meðaltali. Að sjálfsögðu er þetta breytilegt en að meðaltali er ekki fjarri lagi að þessi liður þyrfti að tvöfaldast til þess að menn væru nokkuð á sléttu.