Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. frá efh.- og viðskn. vegna þess frv. sem hæstv. forseti gat um að væri á dagskrá. Nefndin leggur ekki til miklar breytingar. Við 1. gr. er gerð ákveðin brtt. um fjárhæðir sem getið er um á nál., það að í stað fjárhæðinnar 462 komi 480 sem þar er getið um. Síðan vil ég, hæstv. forseti, boða það að í brtt. við 3. umr. mun ég leggja til að í 2. gr. verði breytt ákvæðum um gildistöku þannig að gildistaka dýralæknafrv. taki gildi 1. desember 1999 í stað 1. janúar 2000.