Ferill 344. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 1003  —  344. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 79 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

Frá sjávarútvegsnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ara Edwald, aðstoðarmann sjávar­útvegsráðherra, og Kristján Skarphéðinsson og Árna Kolbeinsson frá sjávarútvegsráðuneyti, en Árni mætti einnig sem fulltrúi sérfræðinganefndar sjávarútvegsráðherra. Þá komu á fund nefndarinnar Eiríkur Tómasson, Þorgeir Örlygsson og Baldur Guðlaugsson úr sérfræðinga­nefnd sjávarúvegsráðherra, Hómgeir Jónsson og Sævar Gunnarsson frá Sjómannasambandi Íslands, Ágúst H. Elíasson, Arnar Sigurmundsson og Gunnar Tómasson frá Samtökum fisk­vinnslustöðva, Björn Jónsson og Kristján Ragnarsson frá Landssambandi íslenskra útvegs­manna og Hinrik Greipsson frá Þróunarsjóði sjávarútvegsins. Einnig komu á fund nefndar­innar Benedikt Valsson og Guðjón A. Kristjánsson frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Hilmar Baldursson, Yngvi Harðarson, Jón Árnason og Arnar Kristjánsson frá Landssamtökum útgerðarmanna kvótalítilla skipa, Sturla Erlendsson, Jón Steinn Elíasson, Kristján Guðmundsson og Óskar Þór Karlsson frá Samtökum fiskvinnslu án útgerðar og Árni Múli Jónasson, Þórður Ásgeirsson, Snorri Pálmason og Guðmundur Kristmundsson frá Fiskistofu. Loks komu á fund nefndarinnar Örn Pálsson og Arthur Bogason frá Landssam­bandi smábátaeigenda, Sigurður Líndal prófessor, Magnús Jóhannesson og Halldór Þorgeirs­son frá umhverfisráðuneyti, Helgi Laxdal frá Vélstjórafélagi Íslands, Júlíus Magnússon, Bragi Sigurðsson, Þórður Ásgeirsson og Sigurður Kristjánsson frá svæðisfélaginu Kletti, Norðurlandi eystra, Friðrik Már Baldursson og Ásgeir Daníelsson frá Þjóðhagsstofnun og Guðmundur Malmquist og Bjarki Bragason frá Byggðastofnun.
    Umsagnir um málið bárust nefndinni frá Þjóðhagsstofnun, Verslunarráði Íslands, Strand­veiðifélaginu Króki, Vélstjórafélagi Íslands, Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Sjó­mannasambandi Íslands, Vinnumálasambandinu, Samtökum fiskvinnslu án útgerðar, Far­manna- og fiskimannasambandi Íslands, Landssamtökum útgerðarmanna kvótalítilla skipa, Fjórðungssambandi Vestfirðinga, Hafrannsóknastofnun, ASÍ og Landssambandi smábáta­eigenda.
    Í dómi Hæstaréttar 3. desember sl. í máli nr. 145/1998: Valdimar Jóhannesson gegn ís­lenska ríkinu var dæmd ógild sú ákvörðun sjávarútvegsráðuneytisins 10. desember 1996 að hafna umsókn Valdimars um almennt og sérstakt veiðileyfi. Kemur fram í forsendum dóms­ins að ákvæði 5. gr. laga nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, sé í andstöðu við jafnræðisreglu 1. mgr. 65. gr. stjórnarskrárinnar og þau sjónarmið um jafnræði sem gæta þarf við takmörkun á atvinnufrelsi skv. 1. mgr. 75. gr. hennar að því leyti sem leyfi til veiða í fiskveiðilandhelgi Íslands séu til frambúðar bundin við skip sem haldið var til veiða á ákveðnum tíma. Í kjölfar dómsins voru samþykkt lög nr. 1/1999 til breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 38/1990. Samhliða frumvarpi sem varð að lögum nr. 1/1999 var lagt fram það frumvarp sem er hér til meðferðar um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands þar sem talið var að gera þyrfti sams konar breytingu á leyfi til grásleppuveiða og almennum veiðileyf­um á grundvelli laga nr. 38/1990.
    Eftir nánari skoðun á frumvarpi því sem liggur hér fyrir, meðal annars með hliðsjón af dómi Hæstaréttar frá 3. desember 1998 í máli nr. 145/1998, er það mat nefndarinnar að ekki þurfi að hrófla við ákvæðum laga um grásleppuveiðar. Leyfi til veiða á grásleppu eru annars eðlis en leyfi til veiða í atvinnuskyni eins og þau voru samkvæmt ákvæði 5. gr. laga nr. 38/1990 fyrir breytingarnar sem gerðar voru með lögum nr. 1/1999. Leyfi skv. 5. gr. snerist um takmörkun á rétti til veiða jafnt úr stofnum sem talið er nauðsynlegt að stjórna veiðum úr og stofnum sem talið er óhætt að stunda frjálsa sókn í. Leyfi til grásleppuveiða skv. 7. gr. laga nr. 79/1997 taka eingöngu til veiða á tilteknum fiskistofni og með þeim og tengdum aðgerð­um hefur sóknin verið takmörkuð í verndarskyni. Ljóst þykir að kvótakerfi á grásleppuveið­um yrði mjög erfitt í framkvæmd og kemur þar til stutt veiðitímabil og að grásleppugöngur eru mjög mismunandi frá ári til árs á einstökum svæðum. Þá er erfitt að stjórna netaveiðum með dagatakmörkunum. Sjávarútvegsnefnd telur því vænlegast að stjórna veiðunum eins og gert hefur verið, með tilteknum fjölda veiðileyfa, afmörkuðu veiðitímabili, hámarksfjölda neta o.s.frv.
    Í ljósi framangreinds leggur nefndin til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar til frekari skoðunar.
    Steingrímur J. Sigfússon sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykkur áliti þessu.

Alþingi, 5. mars 1999.



Kristinn H. Gunnarsson,


form., frsm.


Árni R. Árnason.


Hjálmar Árnason.



Svanfríður Jónasdóttir.


Lúðvík Bergvinsson.


Vilhjálmur Egilsson.



Guðmundur Hallvarðsson.


Stefán Guðmundsson.


Einar Oddur Kristjánsson.