Umræða um frestun á hækkun bensíngjalds

Þriðjudaginn 15. júní 1999, kl. 14:15:48 (283)

1999-06-15 14:15:48# 124. lþ. 6.92 fundur 57#B umræða um frestun á hækkun bensíngjalds# (aths. um störf þingsins), JónK
[prenta uppsett í dálka] 6. fundur, 124. lþ.

[14:15]

Jón Kristjánsson:

Herra forseti. Ég vil bara staðfesta það sem kom fram í máli síðasta ræðumanns að ég hef boðað til fundar í fjárln. kl. 8:15 í fyrramálið og boðað þar til fulltrúa fjmrn. Þeir munu þá fara yfir þær upplýsingar sem þeir hafa um afkomu ríkissjóðs. Annars er verið að vinna skýrslu sem mun liggja fyrir um afkomu ríkissjóðs fyrstu sex mánuði ársins. En ég taldi eigi að síður sjálfsagt að verða við því að kalla til fundar með þessu móti.

Ég hef ekkert við það að athuga að þeirri umræðu ljúki ekki fyrr en þær upplýsingar eru fram komnar, hverjar sem þær verða.