Framhaldsfundir Alþingis

Þriðjudaginn 01. febrúar 2000, kl. 13:34:07 (3755)

2000-02-01 13:34:07# 125. lþ. 53.91 fundur 260#B framhaldsfundir Alþingis#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 53. fundur, 125. lþ.

[13:34]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda þriðjudaginn 1. febrúar 2000 kl. 13.30.

Gjört á Bessastöðum, 24. janúar 2000.

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.``

Framhaldsfundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþingismönnum, svo og starfsmönnum Alþingis óska ég gleðilegs árs og þakka hið liðna. Ég býð þá velkomna til þingstarfa og læt í ljós þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.