Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir ábendingar hans. Ég geri ráð fyrir að þessar skrár muni halda sínu fulla gildi. Hins vegar verði mun strangari reglur sem gildi um söfnun upplýsinga og meðferð þeirra. En ég treysti því að hv. allshn. sem fær frv. til meðferðar muni skoða málið vel og ég trúi því að þar komi fram ýmsar mikilvægar upplýsingar m.a. í umsögnum sem veittar verða um frv.