![](http://www.althingi.is/myndir/althlit.gif)
Forseti (Halldór Blöndal):
Borist hafa tvö bréf. Hið fyrra er dagsett 24. febrúar 2000 og hljóðar svo:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að óska þess að 1. varaþingmaður Framsfl. í Austurl., Jónas Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Seyðisfirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Halldór Ásgrímsson.``
Jónas Hallgrímsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.
Hið síðara er dagsett 23. febrúar 2000. Það hljóðar svo:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að óska þess að 1. varaþingmaður Sjálfstfl. í Norðurl. v., Sigríður Ingvarsdóttir umboðsmaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Hjálmar Jónsson, 1. þm. Norðurl. v.``
Kjörbréf Sigríðar Ingvarsdóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt, en þar sem hún hefur eigi tekið sæti á Alþingi fyrr ber henni að undirrita drengskaparheit.