Forseti (Guðjón Guðmundsson):
Hv. 4. þm. Vestf., Guðjón A. Kristjánsson, hefur óskað eftir að fá að bera af sér sakir. Forseti fær nú reyndar ekki séð að bornar hafi verið sakir á hv. þm. en vill þó gefa honum orðið og heyra hvað hann hefur fram að færa.