Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Forseti vill í tilefni þessarar umræðu minna á að álitamál af þessum toga eru ekki ný af nálinni, þau hafa komið upp áður. Forseti vill minna á að svör ráðherra eru auðvitað fyrst og síðast á ábyrgð þeirra. Forseti hefur hins vegar hlustað á ábendingar hv. þm. og mun beita sér fyrir því að um þetta fari enn á ný fram umræða í forsn. en það hefur gerst áður og mun hugsanlega gerast síðar. En forseti undirstrikar þó enn og aftur að auðvitað er það ráðherrann sjálfur sem fyrst og síðast ber ábyrgð á svörum. Þannig er það og þannig á það að vera.