Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Forseti vísar til þess sem hann sagði áðan að svör ráðherra eru fyrst og síðast á þeirra eigin ábyrgð. Forseti vill hins vegar ekki víkjast undan því að taka þær ábendingar sem hér hafa fram komið upp á vettvangi forsn. og það mun verða gert.