2000-03-13 15:06:08# 125. lþ. 77.92 fundur 370#B ummæli forsætisráðherra í umræðu um starfsemi og fjárreiður stjórnmálasamtaka# (aths. um störf þingsins), SJS
[prenta uppsett í dálka] 77. fundur, 125. lþ.

[15:06]

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Ég ætla ekki að blanda mér efnislega í umræður um þessi mál en úr því að umræða er uppi um fjarveru eða viðveru manna þá er rétt að ég skýri frá því að ástæða þess að ég var ekki hér í þinginu við störf á mánudaginn var og reyndar ekki þriðjudag heldur var sú að ég var erlendis í opinberum erindagerðum. Ég var á ráðstefnu á vegum Norðurlandaráðs eins og fleiri þingmenn og væntanlega kemur það fram í fjarveruskrá.