2000-03-13 15:07:58# 125. lþ. 77.92 fundur 370#B ummæli forsætisráðherra í umræðu um starfsemi og fjárreiður stjórnmálasamtaka# (aths. um störf þingsins), JóhS
[prenta uppsett í dálka] 77. fundur, 125. lþ.

[15:07]

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Ég ætla ekki að blanda mér í þá umræðu sem hér fer fram um fjarvistir þingmanna við þá umræðu sem fór fram sl. mánudag um fjármál stjórnmálaflokkanna. Ég vil vekja athygli á því og minna á að þeirri umræðu er ekki lokið þannig að út af fyrir sig geta þeir sem ekki gátu verið við umræðuna þá haft tækifæri til, þegar hún verður tekin aftur á dagskrá, að fara í ræðustól og tjá sig um þessi mál. En ég vil beina því til hæstv. forseta hvenær megi vænta að þessi umræða haldi áfram í þingsölum. Henni var ekki lokið sl. mánudag og var frestað af ástæðum sem ég þarf ekki að endurtaka hér. Ég beini því til forseta hvort ekki megi vænta þess að þessi umræða haldi áfram hið fyrsta og helst núna í þessari viku.