Guðmundur Hallvarðsson:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. dómsmrh. fyrir svörin. Ég held að allir Íslendingar geri sér grein fyrir mikilvægi málsins bæði með tilliti til, eins og ég gat um áðan, stækkunar fiskiskipastólsins og þeirra starfa sem Landhelgisgæslan sinnir þegar slys og aðrir voveiflegir atburðir eiga sér stað. Það er gott að heyra að málið er senn í höfn. Ég þakka fyrir þetta svar.