Fullgilding samnings um framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna

Miðvikudaginn 22. mars 2000, kl. 13:46:50 (5620)

2000-03-22 13:46:50# 125. lþ. 84.5 fundur 206. mál: #A fullgilding samnings um framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna# þál. 6/125, GAK (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 84. fundur, 125. lþ.

[13:46]

Guðjón A. Kristjánsson:

Herra forseti. Eftir að hafa hlýtt á málflutning í þessu máli, m.a. í allan gærdag, og velt fyrir mér þeim rökum sem komu fram hjá hinum vísustu mönnum, þá hef ég komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé óhagstætt fyrir íslenska þjóð. Ég segi nei.