Forseti (Guðjón Guðmundsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf, dagsett 31. mars 2000:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda, herra forseti, í opinberum erindagerðum tekur Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson varamaður sæti mitt á Alþingi frá 3. apríl nk.
Þetta tilkynnist yður hér með.
Davíð Oddsson.``
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hann boðinn velkominn til starfa.
Enn fremur hefur borist svohljóðandi bréf, dags. 31. mars 2000:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér, með vísun til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að óska þess að 1. varaþingmaður Framsfl. í Reykjavík, Vigdís Hauksdóttir garðyrkjufræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Ólafur Örn Haraldsson.``
Kjörbréf Vigdísar Hauksdóttur hefur áður verið rannsakað og samþykkt. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.
Enn fremur hefur borist svohljóðandi bréf, dags. 31. mars 2000:
,,Þar sem Guðni Ágústsson, 2. þm. Suðurl., er erlendis í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér, með vísun til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að óska þess að 1. varaþingmaður Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, Ólafía Ingólfsdóttir bóndi, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Kristinn H. Gunnarsson,
formaður þingflokks Framsfl.``
Ólafía Ingólfsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa.