Vegurinn fyrir Búlandshöfða

Mánudaginn 03. apríl 2000, kl. 15:43:27 (5814)

2000-04-03 15:43:27# 125. lþ. 87.1 fundur 418#B vegurinn fyrir Búlandshöfða# (óundirbúin fsp.), JÁ
[prenta uppsett í dálka] 87. fundur, 125. lþ.

[15:43]

Jóhann Ársælsson:

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Ég tel að fram þurfi að fara alvörurannsókn á þessum vegi og að ekkert megi til spara til þess að menn viti á hverju er von þarna. Sú viðvörun sem þarna hefur komið fram er allt of alvarleg og hún bendir til þess að undirstöður vegarins séu ekki í lagi. Vonandi er það bara á þessum kafla sem fór en það vita menn ekki nema að láta rannsaka þetta mjög vel. Þessi höfði er úr mjög lausum efnum og hann er feiknarlega brattur og feiknarlega hár. Það er einfaldlega ekki hægt að búa við það að menn viti ekki nákvæmlega hverju menn eiga þarna von á.