Flm. (Árni Johnsen) (andsvar):
Herra forseti. Það er rétt að minna á að skaflinn, sem sumir kalla Grænlandsjökul, bráðnar hægt og það er ákveðinn taktur í grænlenska samfélaginu þar sem menn fara varlega í ýmsum þáttum. Við vonum að niðurstöður liggi fyrir eins fljótt og unnt er af hálfu Grænlendinga. Eftir því er beðið og við sýnum þolinmæði eins og við ætlumst til að aðrir sýni okkur þolinmæði.