Vörugjald af ökutækjum

Þriðjudaginn 11. apríl 2000, kl. 13:51:54 (6320)

2000-04-11 13:51:54# 125. lþ. 97.9 fundur 385. mál: #A vörugjald af ökutækjum# (metangas- eða rafmagnsbílar) frv. 38/2000, ÖJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 97. fundur, 125. lþ.

[13:51]

Ögmundur Jónasson:

Herra forseti. Samkvæmt tillögu okkar hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur er gert ráð fyrir að vörugjald af bifreiðum sem nýta metangas eða rafmagn verði lækkað helmingi meira en gert er ráð fyrir samkvæmt stjfrv. eða um 240 þús. kr. í stað 120 þús. kr. Þeir sem vilja stuðla að vistvænni umferð hljóta að styðja þessa brtt.

Auk þess viljum við að heimild til lækkunar gildi til ársins 2005 í stað ársins 2003.