2000-04-12 00:42:15# 125. lþ. 97.27 fundur 570. mál: #A bílaleigur# frv. 64/2000, samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 97. fundur, 125. lþ.

[24:42]

Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (andsvar):

Herra forseti. Meiningin er ekki að gera heimilum kleift að stofna bílaleigur, það er alveg af og frá. Það er nauðsynlegt að það sé ljóst frá upphafi og tryggt að þarna er fyrst og fremst verið að skapa lagaramma um atvinnustarfsemi en ekki starfsemi eða tilbúna leigusamninga fyrir sjálfan sig eða nákomna ættingja ef um það er að ræða.