Kristinn H. Gunnarsson:
Herra forseti. Hér er flutt smá brtt. við frv. eftir 2. umr. Lagt er til að breyta fyrirsögn V. kafla frv. en fyrirsögnin er svohljóðandi: ,,afhendingardráttur seljenda þjónustu.`` Talið er að betur fari á að fyrirsögnin orðist svo: ,,dragi seljandi að ljúka þjónustu``.