Frsm. meiri hluta utanrmn. (Tómas Ingi Olrich) (andsvar):
Herra forseti. Það er svo að hér er um að ræða síðari umræðu og þess vegna er svigrúm okkar til að skoða málið betur orðið þröngt. En það er sjálfsagt að afla þessara upplýsinga og leggja þær fyrir hv. þm. áður en atkvæðagreiðsla um málið fer fram.