Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég vil benda hæstv. ráðherra á að í brtt. samgn. við frv. sem tekur til flutningaskipanna, farþegaskipanna og skemmtibátanna, er einnig búið að breyta þessari viðmiðun úr 50 í 75. Það kemur fram á bls. 2 að í stað 50 í fyrri málslið 2. mgr. komi 75. Með því frv. sem við ræddum fyrr í dag og þessum tveimur er því verið að breyta þessu beggja megin.