Forseti (Guðjón Guðmundsson):
Forseti ítrekar að fáir þingdagar eru eftir og þetta er eini þingdagurinn í þessari viku og verður því af óviðráðanlegum orsökum að verða lengri þingfundur en við eigum að venjast. Forseti vill með allri vinsemd fara þess á leit við hv. þm. að hann hefji nú mál sitt.