Frsm. minni hluta samgn. (Jón Bjarnason) (andsvar):
Herra forseti. Ég hef ekki fullreynt það sem ég gef í skyn. Hins vegar vísa ég til umræðna á Alþingi um þetta mál og vísa til þess að ég sé þess ekki getið í nál. hv. formanns samgn. að hann hafi fullreynt þetta þannig að hann geti þess vegna tekið undir að þetta sé leyft hvort sem honum líkar það betur eða verr.