Nýbúamiðstöð á Vestfjörðum

Þriðjudaginn 09. maí 2000, kl. 20:39:49 (7246)

2000-05-09 20:39:49# 125. lþ. 110.33 fundur 190. mál: #A nýbúamiðstöð á Vestfjörðum# þál. 19/125, Frsm. ArnbS
[prenta uppsett í dálka] 110. fundur, 125. lþ.

[20:39]

Frsm. félmn. (Arnbjörg Sveinsdóttir):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. frá félmn. á þskj. 1189 um tillögu til þál. um stofnun nýbúamiðstöðvar á Vestfjörðum.

Nefndin hefur fjallað um málið og telur mikilvægt að stofnun nýbúamiðstöðvar á Vestfjörðum verði hraðað, en upplýsingar liggja fyrir um að undirbúningur að stofnun slíkrar miðstöðvar sé þegar hafinn í félmrn.

Nefndin mælir með samþykkt tillögunnar. Undir þetta nál. rita allir hv. þm. í félmn.