2000-05-10 01:15:14# 125. lþ. 111.23 fundur 522. mál: #A kosningar til Alþingis# (heildarlög) frv. 24/2000, JB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 111. fundur, 125. lþ.

[25:15]

Jón Bjarnason (andsvar):

Herra forseti. Það má vel vera að þessi könnun hafi haft áhrif á hvar Höfn í Hornafirði er ætlað að vera skipað í kjördæmi. Að mínu viti er hins vegar alrangt að halda því fram að þar hafi farið fram könnun á því hver væri meirihlutavilji íbúa Hafnar í Hornafirði. Ég vona að íbúum Hafnar í Hornafirði vegni vel í hvoru kjördæminu sem þeir lenda en rétt er að hafa það sem sannast er í þessu máli.