Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Steingrímur J. Sigfússon) (andsvar):
Herra forseti. Varðandi það sem hv. þm. ræddi um í sambandi við fulltrúa starfsmanna í stjórn fyrirtækisins, þá láðist mér að koma inn á það atriði. Ég gleymdi því. Ég ætlaði að minnast á það og ástæða þess að ég tók það ekki sérstaklega upp var sú að þessi brtt. var fram komin og ég styð hana að sjálfsögðu. Ég ætlaði ósköp einfaldlega að lýsa mig sammála því að mjög æskilegt væri að starfsmenn ættu þarna aðild. Ég fagna því að þessi brtt. var flutt og er fram komin. Af þeim ástæðum sá ég ekki ástæðu til að fara sérstaklega inn á það mál. Ég ætlaði mér að geta þess í framsögu minni, en gleymdi því.