Frsm. 2. minni hluta utanrmn. (Margrét Frímannsdóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég held að þetta sé ekki alveg rétt hjá hv. þm., hann nefndi hvort tveggja hér, við skulum halda því til haga, að nauðsyn væri á að fulltrúi samgrn. kæmi að þessu en einnig væri nauðsynlegt að starfsmenn ættu sæti í stjórn og um það erum við sammála.