Tómas Ingi Olrich (andsvar):
Herra forseti. Það er alveg ljóst mál að efnisatriði þáltill. í þremur liðum eru misjöfn og utanrmn. mun að sjálfsögðu taka þetta mál fyrir í heild sinni og taka afstöðu til þess hvort þáltill. er með þeim hætti að hægt sé að samþykkja hana, breyta eða hafna. Þannig verður málið tekið fyrir í heild.