Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
,,Þar sem Guðni Ágústsson, 2. þm. Suðurl., er á förum til útlanda í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér, með vísun til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að óska þess að 1. varaþingmaður Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, Ólafía Ingólfsdóttir, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.
Þetta tilkynnist yður hér með, herra forseti.
Kristinn H. Gunnarsson,
formaður þingflokks Framsfl.``
Kjörbréf Ólafíu Ingólfsdóttur hefur verið samþykkt. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.