Forseti (Ísólfur Gylfi Pálmason):
Það vill þannig til að Halldór Blöndal, forseti þingsins, er ekki í þingsal sem stendur. Hann er við önnur störf úti í bæ en um leið og hann kemur í húsið mun ég koma þeim athugasemdum, sem hér hafa komið fram, á framfæri við hann. Vænti ég nú þess að við getum hafið umræðu á nýjan leik.