Jóhann Ársælsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég hygg nú að hv. þm. hafi alveg skilið hvað ég var að segja þó ég hafi kallað þetta undanþágu. Þessir aðilar hafa virkjunarleyfi og eru þess vegna undanþegnir lögunum um umhverfismat samkvæmt þeim skilningi sem hér hefur verið lagður í það. Ég spyr: Telur hv. þm. að þetta eigi að gilda um aldur og eilífð?