1999-12-08 00:00:13# 125. lþ. 37.5 fundur 206. mál: #A fullgilding samnings um framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna# þál. 6/125, HjálmJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 125. lþ.

[24:00]

Hjálmar Jónsson (andsvar):

Herra forseti. Ég er ekki að gera lítið úr umsögn lögreglustjórans í Reykjavík. Hins vegar er hv. þm. Ögmundur Jónasson að gera ansi mikið úr þeirri umsögn. Varðandi sleggjudóma þá koma þeir nú ansi margir hér úr þessum stóli og ekki síður frá vinstri grænum en öðrum hv. þm.