Gunnar Ingi Gunnarsson:
Herra forseti. Hér er lögð til veruleg lækkun á framlagi til ellilífeyrisþega samanber 19. lið a. Þingmenn Frjálslynda flokksins hafa hins vegar þegar lagt fram tillögu um verulega hækkun á tekjutryggingarhluta ellilífeyrisþega og því segi ég nei.