Frsm. meiri hluta samgn. (Árni Johnsen):
Herra forseti. Ég mæli fyrir brtt. frá meiri hluta samgn. við frv. til laga um Póst- og fjarskiptastofnun. Brtt. felur nánast eingöngu í sér orðalagsbreytingar á ýmsum greinum og samræmingu þannig að ég sé ekki ástæðu til að gera sérstaklega grein fyrir þeim fimm liðum sem fjallað er um en engu að síður töldum við ástæðu til að leggja fram brtt. til að lagfæra svo að betur mætti fara.