Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 419 — 1. mál.
Breytingartillaga
við frv. til fjárlaga fyrir árið 2000.
Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur, Árna Steinari Jóhannssyni, Jóni Bjarnasyni,
Steingrími J. Sigfússyni, Þuríði Backman og Ögmundi Jónassyni.
|
Skv. frv. |
Breyting |
Tillaga |
Við 14-190 Ýmis verkefni
a. 1.62 Vatnajökulsþjóðgarður, undirbúningur 0,0 1,5 1,5
b. 1.65 Kortlagning ósnortinna víðerna 0,0 1,5 1,5
Greinargerð.
Í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir sérstökum útgjöldum til undirbúnings stofnunar Vatnajökulsþjóðgarðs. Sama gildir um kortlagningu ósnortinna víðerna en þingsályktunartillögur um bæði málin hafa verið samþykktar á Alþingi.