Ferill 581. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1081  —  581. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2000.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Tómas H. Heiðar frá utanríkisráðuneyti, Jón B. Jónasson frá sjávarútvegsráðuneyti og Jakob Jakobsson frá Hafrannsóknastofnuninni.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á samningi milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2000. Í samningnum er meðal annars kveðið á um það nýmæli að færeyskum skipum er heimilt á loðnuvertíðunum 1999/2000 og 2000/2001 að veiða allt að 10.000 lestir af loðnu á hvorri vertíð innan lögsögu Íslands úr veiðiheimildum sem fengnar eru með samningum færeyskra og grænlenskra stjórnvalda.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 27. apríl 2000.



Tómas Ingi Olrich,


form., frsm.


Jón Kristjánsson.


Árni R. Árnason.



Einar K. Guðfinnsson.


Jónína Bjartmarz.


Vilhjálmur Egilsson.



Sighvatur Björgvinsson.


Steingrímur J. Sigfússon.