Ferill 421. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1115 — 421. mál.
Breytingartillögur
við frv. til l. um húsgöngu- og fjarsölusamninga.
Frá Vilhjálmi Egilssyni.
1. Fyrirsögn I. kafla verði: Gildissvið og skilgreiningar.
2. Á undan 5. gr. komi ný kaflafyrirsögn, svohljóðandi: II. KAFLI, Upplýsingaskylda seljanda.
3. Í stað orðanna „fimm dögum“ í 2. mgr. 6. gr. komi: frá og með sjötta degi.
4. Á undan 8. gr. komi ný kaflafyrirsögn, svohljóðandi: III. KAFLI, Réttur neytanda til að falla frá samningi o.fl.